84. fundur
atvinnuveganefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 10. október 2016 kl. 15:00


Mættir:

Jón Gunnarsson (JónG) formaður, kl. 15:00
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) 1. varaformaður, kl. 15:00
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 15:00
Birgir Ármannsson (BÁ), kl. 15:00
Birgitta Jónsdóttir (BirgJ), kl. 15:00
Björt Ólafsdóttir (BjÓ), kl. 15:00
Helgi Hjörvar (HHj) fyrir Kristján L. Möller (KLM), kl. 15:00
Páll Jóhann Pálsson (PJP), kl. 15:00
Róbert Marshall (RM), kl. 15:00
Svandís Svavarsdóttir (SSv), kl. 15:00
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 15:00
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 15:00
Þórunn Egilsdóttir (ÞórE), kl. 15:00

Haraldur Benediktsson var fjarverandi.

Nefndarmönnum umhverfis- og samgöngunefndar gafst kostur á að sitja fundinn, frá nefndinni komu: Birgir Ármannsson, Birgitta Jónsdóttir, Róbert Marshall, Svandís Svavarsdóttir, Vilhjálmur Árnason.

Nefndarritari: Selma Hafliðadóttir

Bókað:

1) 876. mál - raflínur að iðnaðarsvæðinu á Bakka Kl. 15:00
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið og fékk á sinn fund Þórhall Vilhjálmsson forstöðumann lagaskrifstofu Alþingis.

2) Önnur mál Kl. 16:00
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 16:00